Ársskýrsla Tilraunastöðvar H.Í. í meinafræði að Keldum fyrir árið 2022 er komin út. Skýrsluna má nálgast hér á PDF sniði: Ársskýrsla 2022
Í ársskýrslunni er að finna ítarlegt yfirlit um fjölbreyttar og metnaðarfullar grunn- og þjónusturannsóknir á sviði dýrasjúkdóma og dýraheilbrigðis, gæðamál, tilvísunar-rannsóknastofur, lífsýnasöfn og birtingar og kynningar starfsfólks.
Þá er:
• Gríðarleg aukning í greiningum vegna fisksjúkdóma síðustu ár rakin
• Greint frá því hvernig ósjaldan reynir á þverfaglegt viðbragð sérfræðinga stofnunarinnar þegar upp koma ný sjúkdómavandamál í dýrum
• Gerð grein fyrir rannsóknum sem byggja á Einni heilsu (One Health), s.s. í tengslum við súnuvalda en það eru sýklar í dýrum og umhverfi sem geta borist á milli dýra og manna
Auk framangreinds má m.a. nefna rannsóknir á:
• Sumarexemi í hestum
• Veiru- og sníkjudýrasýkingum í fiski
• Veirusýkingum í fuglum og hrossum
• Riðu-, bakteríu- og veirusýkingum í sauðfé
• Sýklalyfja- og sníkjudýralyfjaónæmi í dýrum
Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum er dýraheilbrigðisstofnun Íslands.
• Stofnunin rekur rannsóknastofur á átta fagsviðum, auk fullkomnustu öryggisrannsóknastofu landsins
• Sérfræðingar stofnunarinnar búa yfir yfirgripsmikilli fagþekkingu sem er hvergi annars staðar fyrir hendi á landinu