Skipurit og stjórn Keldna
Tilraunastöð HÍ í meinafræði að Keldum annast rannsóknir og þjónustu í þágu heilbrigðiseftirlits, sjúkdómsgreininga og sjúkdómsvarna fyrir búfé, fiska, gæludýr og önnur láðs- og lagardýr í samstarfi við Yfirdýralækni, og er Matvælastofnun til ráðuneytis varðandi sjúkdóma í dýrum og varnir gegn þeim.
Þjónustu- og grunnrannsóknir á Keldum skiptast upp eftir deildum,þ.e. Bakteríu-, sníkjudýra- og meinafræðideild, Rannsóknadeild fisksjúkdóma og Veiru- sameindalíffræðideild. Stjórnsýsludeild sér um fjármál og rekstur stofnunarinnar.
Stjórn Keldna er skipuð af Háskólaráði til fjögurra ára í samræmi við 3.gr. laga nr. 67/1990. Núverandi stjórn var skipuð þann 1. janúar 2023. Í henni sitja:
- Zophonías Oddur Jónsson, prófessor og formaður (tilnefndur af Raunvísindadeild/Líf- og umhverfisvísindadeild)
- Charlotta Oddsdóttir, dýralæknir (tilnefnd af matvælaráðherra)
- Pétur Henrý Petersen, prófessor, (tilnefndur af Læknadeild Háskóla Íslands)
- Sigríður Jónsdóttir, ónæmisfræðingur, (tilnefnd af starfsmönnum Tilraunastöðvarinnar)
- Sigurborg Daðadóttir, yfirdýralæknir, (tilnefnd af matvælaráðherra)
Birkir Þór Bragason er ritstjóri heimasíðu Keldna, og Stefán Ragnar Jónsson fræðslustjóri.