Fagsvið Keldna
Þjónusturannsóknir og grunnrannsóknir á Keldum skiptast upp eftir deildum. Finna má lista yfir þjónusturannsóknir Keldna í gjaldskrá Tilraunastöðvarinnar.
Á Rannsóknadeild fiskjúkdóma fara fram rannsóknir á sjúkdómum í fiskum og skeldýrum, sníkjudýrum í fiskum og ónæmisfræði fiska. Deildarstjóri er Árni Kristmundsson.
Á Veiru- og sameindalíffræðideild er unnið að rannsóknum í veiru-, ónæmis- og sameindalíffræði. Sum þessara verkefna hafa verið í gangi lengi og eru afar umfangsmikil. Þar ber helst að telja rannsóknir á mæði-visnuveiru og rannsóknir á sumarexemi. Deildarstjóri er Vilhjálmur Svansson.
Bakteríu-, sníkjudýra- og meinafræðideild skiptist upp í þrjár undirdeildir þ.e. sýkla- og bólefnadeild, meinafræðideild og sníkjudýrafræðidield. Á þessum deildum er unnið að rannsóknum á sníkjudýrum, örverum og meinafræði í ýmsum dýrategundum öðrum en fiskum. Deildarstjóri er Charlotta Oddsdóttir.
Viðfangsefni rannsóknanna eru mjög mismunandi eftir deildum, og er þeim gerð ítarleg skil árlega í Ársskýrslu stofnunarinnar.