Í nýjasta Bændablaðinu er grein um Tilraunastöðina eftir Sigurbjörgu Þorsteinsdóttur og Vilhjálm Svansson þar sem farið er yfir sögu stofnunarinnar, og þá óvissu sem komin er upp varðandi staðsetningu hennar á Keldnalandinu.
Í greininni segir m.a. "Blikur eru nú á lofti um framtíð Tilraunastöðvarinnar á Keldum og þess kröftuga rannsóknastarfs sem þar fer fram því áætlanir eru um að land stofnunarinnar renni inn í félagið Betri samgöngur ohf. sem hluti af framlagi ríkisins við lagningu Borgarlínu. Í samþykktum fyrir hlutafélagið Betri samgöngur ohf., kemur m.a. fram að félagið skal með sérstökum samningi við fjármála- og efnahagsráðuneytið taka við landi í eigu ríkisins við Keldur í Reykjavík. Allur ábati af þróun og sölu landsins skal renna óskertur til verkefnisins um uppbyggingu samgangna á höfuðborgarsvæðinu. Í þessu sambandi hefur lítið verið rætt eða ritað um þá stofnun og starfsemi sem er á Keldnalandinu og hefur verið þar um langt árabil."